Færsluflokkur: Dægurmál

Hún girnist kjötkatlana

Siv dauðlangar í notalegt sæti við kjötkatlana en kommarnir munu hrinda Framsóknarmönnum út í kuldann ef þeir geta. Þjóðarinnar vegna óska ég kommunum þess að þeir fái nægan meirihluta til að stjórna landinu án fulltingis Framsóknarmanna.

Það er segin saga að hvar sem Framsóknarmenn stíga niður fæti, þar rýkur upp spilling og heimtufrekja. Menntunarlausir og heimskir lúðar fá forgang að embættum þjóðarinnar. Skilvirkni í kerfinu hraðminnkar þar sem Framsóknarflokkurinn kemur fæti milli starfs og hurðar.

Verst er þó þegar þeir láta sér ekki nægja bitlinga og fyrirgreiðslu en vilja hafa áhrif á þjóðmálin. Þeir heimtuðu 90% lán til íbúðakaupa og lögðu fasteignamarkaðinn í rúst. Þeir laumuðu bönkunum í krumlur Framsóknardólga og bankakerfið hrundi.

Samkvæmt skoðanakönnunum hafa VG og Samfylking nægan meirihluta enn sem komið er. Ég sef rótt fram að næstu könnun.


mbl.is Framsókn vill í vinstrisæng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er fórnarlamb hrekkjusvína

Það var sorglegt að lesa þessa frétt. Jóhanna hefði átt að draga sig í hlé og hætta í stjórnmálum eins og hún ætlaði sér. Nú lætur hún þá Össur og Steingrím draga sig á asnaeyrunum út í hverja ófæruna af annarri. Þeir eru lúmskir og skýla sér undir pilsfaldi hennar. Hún er fórnarlamb hrekkjusvína og gerir sér ekki grein fyrir því.


mbl.is Jóhanna: Sjálfstæðismenn áfram á bekknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veik útkoma varaformannsins

Þetta er óneitanlega veik útkoma. 80% þegar hún ein sækist eftir starfinu, það er ansi rýr uppskera. Stundum eiga stjórnmálamenn að láta hagsmuni flokksins ganga fyrir sínum eigin. Ég held það hefði verið skynsamlegra af henni að draga sig í hlé núna og leyfa nauðsynlegri, allsherjar endurnýjun að hafa sinn gang. Nú hefur hún truflað þessa endurnýjun. Hvað sem öllum baráttutöktum líður, þá er hún og verður hluti af gamla genginu.
mbl.is Þorgerður Katrín fékk 80,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stór stund í lífi þjóðar

Þetta er stór stund í lífi okkar litlu þjóðar. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur talað. Flokkur allra stétta hefur látið álit sitt í ljós. Þjóðin hefur markað sjálfri sér nýja forystu, nýja stefnu og nýja framtíð. Bjarni Benediktsson er fulltrúi æskunnar. Hin glæsilega, íslenska æska hefur stigið á stall og heimtar nú rétt sinn. Við sem eldri erum stígum til hliðar og gleðjumst með góðum dreng. Framtíð barnanna okkar og barnabarna er vel borgið í höndum hans.
mbl.is Nýrri kynslóð treyst til verks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vesalings kerlingin veit ekki sitt rjúkandi ráð

Það er dapurlegt að lesa þessa frétt. Vesalings gamla kommakerlingin er ekki með á nótunum, hún veit ekkert hvað er að gerast í kringum hana, hún er leiksoppur varga á borð við Össur Skarphéðinsson og Steingrím Sigfússon sem nota hana fyrir stimpil á litlu valdaplottin sín. Nú ætlar hún að gera sig að landráðamanni með því að afhenda skriffinnum í Brúsel fullveldi þjóðarinnar. Við, þessi litla yndislega smáþjóð, eigum ekkert erindi í gin úlfanna. Það er auðsýnt hvað þeir hafa í hyggju, Össur og Steingrímur. Þeir ætla að tefla fram þessari gömlu, fáfróðu konu og stjórna öllu á bak við tjöldin, því sjálf ber hún ekkert skynbragð lengur á eitt eða neitt sem er á seyði. Þetta er ljótur leikur hjá þeim kumpánum.
mbl.is Tvöföld atkvæðagreiðsla tilgangslítil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkaflakk er pólitísk spilling

Það er ekkert annað en pólitísk spilling þegar fólk valsar svona milli stjórnmálaflokka eins og atvinnumenn í fótbolta sem fara þangað sem best er boðið. Þetta flokkaflakk er búið að skemma pólitískt andrúm í landinu. Flokkaflakkið spillir því heilbrigði sem flokkarnir þurfa að njóta. Verst er þegar taparar í prófkjörum snarast yfir í annan flokk og birtast á lista hjá honum. Flokkarnir þurfa að sameinast um að binda endi á þessa ósvinnu í eitt skipti fyrir öll.
mbl.is Margrét Sverrisdóttir í framkvæmdastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær endurnýjun

Þetta er frábær endurnýjun. Ungur, vel gefinn, vel menntaður og duglegur heiðursmaður hefur tekið við forystu í stærsta flokki íslensku þjóðarinnar. Þetta veit á gott fyrir okkur Íslendinga. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn hæfasta stjórnmálaforingjann og hann mun uppskera samkvæmt því þegar fram líða stundir.
mbl.is Bjarni kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir í vondri klípu

Ég skil Geir vel. Hann var í vondri klípu. Hann bar ábyrgð á þessari fáránlegu Endurreisnarnefnd og átti enga aðra úrkosti en að bera blak af henni. Það var fljótfærni af Geir að skipa þessa nefnd yfirleitt. Það gafst enginn tími til að vinna þetta verk sómasamlega. Afraksturinn er líka aumkunarverður og til þess eins fallinn að skemma fyrir Sjálfstæðisflokknum. Vonandi verður upplaginu ekið á haugana þegar í stað.
mbl.is Geir: Ómaklegt hjá Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húmorslausu kommagerpin gnísta tönnum

Húmorslausu kommagerpin hér á moggablogginu öskra sig sótrauð af illsku yfir brandara leiðtogans mikla um norska sendisveininn frá verkamannaflokknum sem heilög Jóhanna gerði að seðlabankastjóra yfir Íslandi. Það má ekki segja brandara um sjúkdóma, segja litlu reiðu gerpin. Til að gera þau enn reiðari er hér brandari sem er um blindan mann og ljóskur. Mannkynið er búið að hlæja sig máttlaust að þessum brandara síðan hann var settur á netið. Hvernig hefðu kommagerpin brugðist við ef Davíð hefði sagt hann?

Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og pantar sér glas.
Þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann á barþjóninn: “Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?”
Á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: “Áður en þú segir þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast af því þú ert blindur, að ég fræði þig um fáein atriði:
Barþjónninn er ljóshærð kona.
Útkastarinn er ljóshærð kona.
Ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate, og ég er ljóshærð.
Konan við hliðina á mér er ljóshærð og íslandsmeistari í lyftingum.
Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er íslandsmeistari í vaxtarækt.
Hugsaðu þig vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara þinn?”

Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið. “Nei, ætli það, ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum.”

Landsfundur landráðamannanna

Þetta er landsfundur landráðafólksins. Hvers vegna er Samfylkingarmönnum svona illa við allt sem íslenskt er? Hvers vegna er þeim svona illa við sjálfstæði okkar, móðurmálið, þjóðernið og menninguna? Þeir vilja framselja allt í hendur hrokafullra skriffinna í Brúsel. Þegar þeir verða búnir að svíkja okkur í hendur stórþjóðanna þurfum við ekkert ráðuneyti efnahagsmála því þá verður öllu stjórnað með e-mailum frá Brúsel.


mbl.is Eitt ráðuneyti efnahagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Baldur Hermannsson

Höfundur

Baldur Hermannsson
Baldur Hermannsson

Meirihlutinn hefur alltaf rangt fyrir sér. (Ibsen, lauslega snarað)

 

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband