Færsluflokkur: Dægurmál
15.1.2011 | 21:28
Vinstri menn klúðra fjármálum
Hafnarfjörður varð af 93 milljónum króna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.1.2011 | 13:42
Óbótamenn sleppa billega
Þegar almenningur getur ekki lengur treyst réttvísinni neyðast menn til að taka lögin í sínar hendur. Um daginn sagði ung kona frá því að hún hefði fengið vini sína til að misþyrma óþokkanum sem nauðgaði henni. Hún treysti ekki réttvísinni og valdi þessa leið. Og hér segir frá móður sem þarf að horfa upp á forhertan morðingja dóttur sinnar valsa um götur með glott á vör......hann lifir en veslings stúlkan liggur myrt og svívirt í kaldri gröf.
*
Óbótamenn á Íslandi sleppa alltof billega, það er nú bara staðreynd málsins. Þeir myrða, nauðga, stela og misþyrma og fá væga dóma, jafn vel þótt síbrotamenn séu. Þó keyrir um þvert bak þegar hinum dæmdu óbótamönnum er ekki einu sinni stungið inn til að afplána refsinguna. Þeir ganga um frjálsir þangað til dómurinn fyrnist, þá byrja þeir aftur að nauðga, drepa, stela og misþyrma.
*
Til þess eru ríkisstjórnir að halda uppi lög og reglu. En Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur yppta öxlum andspænis ofbeldinu. Kannski minnast þau þess að það voru ofbeldismenn sem komu þeim sjálfum að kjötkötlunum.
*
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
13.1.2011 | 17:25
Staðgöngumæðrun - Alþingi steinsefur á verðinum
Er það ekki dæmigert fyrir Alþingi Íslendinga að veita blessuðu barninu íslenskan ríkisborgararétt en hafa þó ekki lögleitt staðgöngumæðrun? Staðgöngumæðrun er hreint ekki sjálfsagt mál og foreldrar barnsins hafa því framið verknað sem ekki er löglegur hér á landi. Þau treysta á að samúðarbylgjan muni brjóta allar hindranir og þar með allar reglur.
-
Staðgöngumæðrun felur í sér að blásnauð kona leigir auðugum hjónum líkama sinn með allri innri líffærastarfssemi í 9 mánuði. En Alþingi hefur bannað með lögum vændi, sem felur í sér að konan leigir karlmanni hluta af líkama sínum í aðeins 11 mínútur að meðaltali, ef marka skal heimsfræg ummæli vændiskvenna.
-
Staðgöngumæðrun er mál sem þolir enga bið. Alþingi hefði átt að vera búið að fjalla um það og taka ákvörðun fyrir löngu. En fallist Alþingi á staðgöngumæðrun kemur ekki annað til greina en aflétta banni á vændi sem er ekkert annað en smámunir hjá staðgöngumæðrun.
12.1.2011 | 13:31
Svíar eiga að skammast sín.
Segir Svía undirbúa framsal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.1.2011 | 10:09
Ofbeldisverkin á Austurvelli opnuðu flóðgáttir
Vill að ofstækismenn svari til saka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.1.2011 | 17:23
Nýr stjórnmálaflokkur á Íslandi?
Okkur bráðvantar svona stjórnmálaflokk á Íslandi. Heita má að það séu síðustu forvöð að stofna svona flokk.......flokk sem ekki vinnur að því að trana fram sínum mönnum og leggja undir sig stjórnsýsluna, heldur flokk sem vinnur dag og nótt að því markmiði að efla vitræna umræðu um þjóðmál.
-
Hver ætti að leiða slíkan stjórnmálaflokk? Mér dettur í hug Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri DV, sem gerþekkir þjóðmálin en tilheyrir engri sérstakri stjórnmálahreyfingu. Jónas er þar að auki geysi hugmyndaríkur, orðhvatur og frábitinn vinsældaveiðum. Annar maður, stórfróður um landsmálin, er auðvitað Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins.
-
Ég held að þessi flokkur yrði á örskömmum tíma langstærsti stjórnmálaflokkur Íslands og í sérflokki sá besti.
Nýr stjórnmálaflokkur í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2011 | 18:13
Hrossin þagna
Bregðast við málflutningi Árna Þórs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.1.2011 | 17:52
Bjarni gnæfir yfir gapuxana
Bandaríkjamenn beita lögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2011 | 12:07
Hetjuljóminn bliknar
Wikileaks hefur stolið mörg hundruð þúsund trúnaðarskjölum úr gagnageymslum bandarískra stjórnvalda og birt þær á netinu. Þessi skjöl varða allt milli himins og jarðar ..... meðal annars hlægilega kjaftafundi með nautheimskum fulltrúum íslenskra stjórnvalda og afar sérkennilega tilburði Árna Finnssonar náttúrufasista, sem vart geta talist annað en landráð.
-
Wikileaks hefur opnað glufu inn í hin margfrægu, reykfylltu bakherbergi alþjóðastjórnmálanna og það er undarleg veröld sem þar getur að líta. Hvað sem Bandaríkjamönnum kann að finnast er sú innsýn ábyggilega af hinu góða.
-
En Wikileaks verður að þola að þeirra eigin gögn séu skoðuð. Wikileaks brýtur af sér gagnvart mörgum aðilum og verða að þola lítilsháttar mótlæti af þeim sökum. Hetjuljóminn bliknar þegar upplýsingahetjurnar fara í felur og vilja ekki veita upplýsingar um sína eigin starfssemi.
Aðför að tjáningarfrelsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
8.1.2011 | 13:34
Kommastrákurinn alltaf sjarmerandi
Ögmundur Jónasson er síbernskur og þar af leiðandi sjarmerandi. Ég fæ oft þá tilfinningu að hann meini raunverulega það sem hann segir. Það er fágætur kostur á stjórnmálamanni. Nú finnst honum mál Birgittu Jónsdóttur harla sérkennilegt og grafalvarlegt. Ögmundur veit bersýnilega ekkert um twitter. Facebook og twitter eru opinberar vefsíður, lesnar af milljörðum manna. Sá sem skrifar eitthvað á þessar síður öskrar yfir heimsbyggðina. Hafi Bandaríska dómsmálaráðuneytið illan bifur á íslenskum hippaþingmanni sem stekkur út úr þingsölum til þess að berja þinghúsið utan og brjóta rúður, þá er skiljanlegt að þeir vilji skoða yfirlýsingar hennar á twitter.
-
Þetta mál er á engan hátt sérkennilegt. Það er heldur ekki grafalvarlegt og alls ekki merkilegt.
Sérkennilegt og grafalvarlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Baldur Hermannsson
Bloggvinir
- kleppari
- odinnth
- viggojorgens
- joiragnars
- pallvil
- kristinn-karl
- halldorjonsson
- bassinn
- blaskjar
- skari60
- snjolfur
- altice
- andres
- svarthamar
- axelthor
- hlf
- gthg
- noldrarinn
- maeglika
- finni
- gustaf
- ragnhildurkolka
- bjornbondi99
- gp
- jokris
- andrigeir
- reykur
- skagstrendingur
- jonvalurjensson
- offari
- fun
- bf
- arikuld
- lehamzdr
- ziggi
- skulablogg
- rafng
- juliusbearsson
- jari
- islandsfengur
- stormsker
- haddih
- agbjarn
- katagunn
- brylli
- esgesg
- siggith
- gorgeir
- gleymmerei
- holmarinn
- holmgeir
- jonmagnusson
- kreppan
- kristjan9
- rannveigh
- pjeturstefans
- umrenningur
- tilveran-i-esb
- valdimarg
- sisi
- vefritid
- nytthugarfar
- joelsson
- gunz
- mosi
- ollana
- allt
- kebblari
- thorarinn
- muggi69
- ihg
- helgigunnars
- what
- nautabaninn
- jonsnae
- thjalfi
- bjargfruin
- stebbifr
- 170341
- jakobk
- lm
- steffy
- egillthord
- alyfat
- estheranna
- re
- olafurthorsteins
- huldumenn
- sigurdurkari
- sjonsson
- marinogn
- arnthor
- mullis
- vogin
- ace
- axelpetur
- jonkarijonsson
- jaherna
- gummi-p
- borkurgunnarsson
- snorrima
- landfari
- eyjann
- gbe
- carlgranz
- heimssyn
- gattin
- gmc
- kerubi
- fullvalda
- tourguide
- omarragnarsson
- morgunbladid
- bjarnihardar
- morgunblogg
- krist
- smjerjarmur
- predikarinn
- vinaminni
- gagnrynandi
- magnusthor
- snorribetel
- eeelle
- veravakandi
- nonniblogg
- hjaltisig
- benediktae
- athena
- hallarut
- ksh
- joninaottesen
- thjodarheidur
- harring
- gamli
- prakkarinn
- zeriaph
- stjornlagathing
- saemi7
- vidhorf
- yngvii
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar