Þorsteinn Pálsson hefndi sín á Davíð

Seðlabankar bera nákvæmlega enga ábyrgð á hegðun viðskiptabanka en engu að síður tókst hinni skrautlegu fylkingu Davíðshataranna að kenna Davíð um ósómann. Þar kom til sögu máttur hinna mörgu:

1. Bónusfeðgar með alla sína leigupenna náðu fram langþráðum hefndum og beindu sjónum frá sjálfum sér.

2. Ingibjörg Sólrún og Samfylkingin komu höggi á fornan andstæðing.

3. Útrásarvíkingarnir sátu um stund með geislabaug á enni og kenndu Davíð um allt saman.

4. Einstaklingar á borð við Þorvald Gylfason sem töldu sig eiga Davíð grátt að gjalda sáu sér færi að leggja til hans. Þorvaldur hjakkaði mánuðum saman á staðhæfingum sem síðar reyndust marklausar.

5. Þorsteinn Pálsson var þá ritstjóri Fréttablaðsins og fremsti leigupenni Jóns Ásgeirs. Hann mokaði út þúsund óhróðursgreinum um Davíð Oddsson en bannaði birtingu greina sem héldu uppi vörnum fyrir hann. Þetta veit ég af eigin reynslu.  Þarna hefndi Þorsteinn greypilega fyrir ófarirnar á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins, þegar Davíð steypti honum af stóli forðum daga. Hefndin er sæt.

 

Um daginn var þess getið í sjónvarpsfréttum að Seðlabankinn vildi fá lagaheimildir til þess að hafa taumhald á viðskiptabönkunum svo hrunið myndi ekki endurtaka sig. Þessar umleitanir eru vitaskuld staðfesting á því að Seðlabankinn hafði ekki þessar heimildir og því út í bláinn að gera hann meðsekan.


mbl.is Davíð: Ekki starfhæf ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Já, hefndin er (súr)sæt.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.12.2010 kl. 13:05

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Vantar ekki Björgólfsdæmið inn í þetta hjá þér Baldur ?

hilmar jónsson, 30.12.2010 kl. 13:07

3 identicon

Einn á verði Oddsson stóð

elskaði hann sína þjóð

þá birtist kynvillt kommafljóð

og kappann myrti trítilóð

stormsveipur (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 14:30

4 Smámynd: Landfari

Á hvaða staðhæfingum hjakkaði Þorvaldur Gylfason, sem síðar reyndust marklausar?

Landfari, 30.12.2010 kl. 17:50

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ég man alveg sérstaklega eftir tuggunni um gjaldeyrisvarasjóðinn .... ég skoðaði oft þessar greinar hans sem voru ótrúlega móðursýkislegar og báru sterkan keim af persónulegri óvild, kannski frá menntaskólaárunum, en ég hef þær ekki á hraðbergi. Dálæti hans á evru var líka við brugðið.

Baldur Hermannsson, 30.12.2010 kl. 18:38

6 Smámynd: Baldur Hermannsson

Glæsilegur kveðskapur, virðulegi stormsveipur.

Baldur Hermannsson, 30.12.2010 kl. 18:38

7 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hilmar, ég er nú bara að vísa í fréttina og spjallið um Seðlabankann. Þú ert væntanlega að tala um sölu Landsbankans?

Baldur Hermannsson, 30.12.2010 kl. 18:39

8 Smámynd: hilmar  jónsson

Jamm..

hilmar jónsson, 30.12.2010 kl. 18:43

9 identicon

Er nú Davíðsaftansöngurinn hafinn hjá þér eina ferðina enn Baldur minn? Ég stóð í þeirri trú að þú vildir afnema hundahald í Reykjavík.

Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 20:22

10 identicon

Jóhanna er ekki leiðtogi frá náttúrunnar hendi og hefur hætt sér inn á svæði sem hún á ekki heima á. Hún er of leiðitöm, og áhrifagjörn og of hégómleg (hún roðnar þegar sumar fréttakonur skjalla hana!) til að geta hagað sér eins og leiðtogi. Leiðtogi er klettur sem stendur óhaggaður af lasti, en sérstaklega af lofi, óvinum, en sérstaklega vinum. Jóhanna hefur ekki þennan innri styrk og þennan innri frið sem einkennir sannan leiðtoga, heldur er hún sem rekald er hrekst í vindi. Það versta af öllu er að Jóhanna stjórnast af ótta, en það á hún sameiginlegt með Steingrími og fleirum. Þess konar fólki lýsir einn af stofnfeðrum Bandaríkjanna, upplýstur maður, með orðunum "Those who are willing to give up essential liberty, to find a bit of temporary safety, deserve neither and will lose both." Og ef aðeins þjóðin hefði treyst þessu fólki meir, tekið þau trúanlegar, gefið þeim meira "tækifæri" og sýnt minni mótstöðu, þá hefðum við verið óverðug að sjálfstæði okkar og frelsi og hefðum þegar glatað báðu, því ótti sem kallar á smá öryggi sama hvað stírir Jóhönnu og Steingrími og það var óttinn sem hrakti þau til að vera með endalausan áróður fyrir Icesave I, neita að skoða aðra möguleika, reyna að telja þjóðinni hughvarf að mæta á kjörstað og spá dómsdegi, eldi og brennisteini ef við beygðum okkur ekki strax undir svipu gömlu heimsveldanna sem nú herja á okkur, og hafa þegar knésett hálfa Afríku í eilíft skuldafangelsi og hindra með því alla uppbyggingu (Átak Bono og fleiri MAKE POVERTY HISTORY er enn í gangi, kynnið ykkur það! Að samþykkkja EKKI Icesave er innlegg í þá baráttu, því það hjálpar hrjáðustu þjóðum heims með að setja nýtt fordæmi um lausn úr skuldavanda og mun hafa afdrifarík áhrif á alþjóðalöggjöf.......horfið fram í tíman! Þá mun allur heimurinn elska Ísland fyrir staðfestu sína!)

Helsta einkenni alvöru leiðtoga er ÓTTALEYSI. Hann lætur ekki hræða sig til að taka ákvarðanir byggðar á stund og stað og hvað þá grýlum og blekkingum og blindþokum og ryki sem aðrir þyrla upp og slá í augu hans, eins og er raunin með Jóhönnu og AGS, ESB etc hvers hvert einasta orð hún tekur jafn trúanlega og leiguliðinn í gamla daga, hræddur um að vera annars brenndur á báli, orð biskups og kóngs, því hún er að eðlisfari þræll, og Steingrímur líka, og því vanvirða þau frelsi annars fólk og traðka í svaðið, þó réttur hvers manns, meðfæddur sé frelsið.

Það er HÆTTULEGT að hafa "leiðtoga" sem ekki búa yfir réttum eiginleikum.

Ef við losnum okkur ekki mjög fljótt við þetta fólk, þá fara þau að verða agressívari heltekin af ótta sem þau eru, og munu hoppa á fyrsta tilboð um að selja íslensku þjóðina. Þetta er bara þeirra eðli, þau eru ekki merkilegri eða betri manneskjur en það, þau eru í ánauð og fjötrum blekkinga og sjúklegrar hræðslu sem lætur þau taka rangar ákvarðanir og fékk þau nánast til að tortýma þjóðinni.

Ísland er kúgað af gömlu heimsveldunum og þarf nýja leiðtoga fyrir nýja tíma. Leiðtoga sem eru óttalausir að standa uppi í hárinu á þeim sem fara með völd í heiminum og breyta þannig gangi sögunnar. Ísland sem hefur verið hlunnfarið af sömu öflum og Indland, verðandi miðstöð heimsins, þarf mann sem er alvöru leiðtogi, hugrakkur, samkvæmur sjálfum sér og haggast ekki frekar en klettur hvað sem líður hótunum og hræðsluáróðri, mann eins og Ghandi.

Jóhanna og Steingrímur eru eins fjarri Ghandi og komist verður. Þau minna frekar á gyðingana í útrýmingarbúðunum sem fengu örlítið betri meðferð (hærra kaup etc) í skiptum fyrir að fara illa með sína eigin samlanda og urða lík þeirra. Mér þykir það leitt en svona fólk er ekki hægt að bera saman við neitt annað. Þau eru heiglar og svikarar. Fyrirgefum þeim, eyðum ekki orku í að hata þau, en finnum þessu sálsjúka og fárveika fólki með sinn sjúklega Stockholms syndrome, sem laug því hér Íslandi bæri "siðferðileg skylda"  til að borga Icesave I (og Afríkönunum þá til að svelta undan skuldafangelsi gömlu nýlenduherranna samkvæmt sömu rökum og sömu lífssýn!), á að finna störf við hæfi, þar sem þeirra góðu eiginleikar, sem vonandi eru einhverjir nýtast, án þess þau geti skaðað aðra með valdi, því vald eiga áhrifagjarnir heiglar aldrei að fá í hendur. 

XXX (IP-tala skráð) 31.12.2010 kl. 14:48

11 identicon

HÞH, getur verið að færslan hjá BH (King) sé tekin úr Davíðssálmi númer sjöhundruðfjörutíuogfimm? Þar kemur nefnilega fyrir "Ef þú tilbiður ekki Golíatsbanann máttu hundur heita" Nema þar hafi kannski staðið Golíatsbananan. Ég bara man það ekki.

Heyr minn himnasmiður (IP-tala skráð) 31.12.2010 kl. 18:30

12 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Óttaleg froða er þetta allt saman!

Með bestu froðukveðjum inn í nýja árið 2011 sem verður vonandi betra en það sem er nýliðið.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 1.1.2011 kl. 00:20

13 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég neyðist til að leiðrétta eftirfarandi ummæli þín Baldur:

»Seðlabankar bera nákvæmlega enga ábyrgð á hegðun viðskiptabanka«

Þvert á móti bera seðlabankar alla ábyrgð á viðskiptabönkum og er það samkvæmt torgreindu peningastefnunni. Notast hefur verið við þessa peningastefna frá 1920 og hún hefur skilað okkur efnahagshruninu og ótrúlegri rýrnun Krónunnar.

Frá 1920 hefur Krónan rýrnað um 99,95% miðað við Dönsku Krónuna, sem örugglega hefur rýrnað mikið líka. Menn eru að setjá útá hönnun Landeyjahafnar, en hvað má þá segja um hönnun peningastefnunnar ?

Að öðru leyti ferðu líklega með rétt mál og sérstaklega varðandi skaðræðis-gripinn Þorstein Pálsson. Þess má líka geta, að starfsmenn Seðlabankans bera ekki ábyrgð á stefnu hans, heldur er við Alþingi að sakast. Hins vegar hefðu gáfaðri starfsmenn bent stjórnvöldum á foraðið sem var framundan. Er nokkuð að rofa til hjá Seðlabankanum ? Ég er ekki bjartsýnn um að svo sé.

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 2.1.2011 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Hermannsson

Höfundur

Baldur Hermannsson
Baldur Hermannsson

Meirihlutinn hefur alltaf rangt fyrir sér. (Ibsen, lauslega snarað)

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 340384

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband