31.3.2009 | 15:48
Íhaldið lagar hrákasmíðina
Það verður með þetta frumvarp eins og seðlabankafrumvarpið. Ríkisstjórnaraularnir bera fram einhverja óskiljanlega hrákasmíð og svo lendir það á íhaldinu að koma einhverri mynd á óskapnaðinn. Það er svo sannarlega ekki hlutverk stjórnarandstöðunnar að sjá til þess að frumvörp séu boðleg en svona verður þetta næstu fjögur árin, sannið þið til.
Nálgast Sjálfstæðisflokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Baldur Hermannsson
Bloggvinir
- kleppari
- odinnth
- viggojorgens
- joiragnars
- pallvil
- kristinn-karl
- halldorjonsson
- bassinn
- blaskjar
- skari60
- snjolfur
- altice
- andres
- svarthamar
- axelthor
- hlf
- gthg
- noldrarinn
- maeglika
- finni
- gustaf
- ragnhildurkolka
- bjornbondi99
- gp
- jokris
- andrigeir
- reykur
- skagstrendingur
- jonvalurjensson
- offari
- fun
- bf
- arikuld
- lehamzdr
- ziggi
- skulablogg
- rafng
- juliusbearsson
- jari
- islandsfengur
- stormsker
- haddih
- agbjarn
- katagunn
- brylli
- esgesg
- siggith
- gorgeir
- gleymmerei
- holmarinn
- holmgeir
- jonmagnusson
- kreppan
- kristjan9
- rannveigh
- pjeturstefans
- umrenningur
- tilveran-i-esb
- valdimarg
- sisi
- vefritid
- nytthugarfar
- joelsson
- gunz
- mosi
- ollana
- allt
- kebblari
- thorarinn
- muggi69
- ihg
- helgigunnars
- what
- nautabaninn
- jonsnae
- thjalfi
- bjargfruin
- stebbifr
- 170341
- jakobk
- lm
- steffy
- egillthord
- alyfat
- estheranna
- re
- olafurthorsteins
- huldumenn
- sigurdurkari
- sjonsson
- marinogn
- arnthor
- mullis
- vogin
- ace
- axelpetur
- jonkarijonsson
- jaherna
- gummi-p
- borkurgunnarsson
- snorrima
- landfari
- eyjann
- gbe
- carlgranz
- heimssyn
- gattin
- gmc
- kerubi
- fullvalda
- tourguide
- omarragnarsson
- morgunbladid
- bjarnihardar
- morgunblogg
- krist
- smjerjarmur
- predikarinn
- vinaminni
- gagnrynandi
- magnusthor
- snorribetel
- eeelle
- veravakandi
- nonniblogg
- hjaltisig
- benediktae
- athena
- hallarut
- ksh
- joninaottesen
- thjodarheidur
- harring
- gamli
- prakkarinn
- zeriaph
- stjornlagathing
- saemi7
- vidhorf
- yngvii
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 340675
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ríkisstjórnin ber fram Stjórnarskrárfrumvarp sem tryggir hagsmuni heildarinnar. Óþarfa dekur við Sjálfstæðisflokkinn að breyta miklu þar. Ætli þær breytingar lúti þá ekki að því að tryggja einhverja sérhagsmuni, sem hafa verið gefnir eða seldir fyrir verðlausar krónur. Kæmi ekki á óvart.
Talandi um hrákasmíð: Ertu búinn að henda Endurreisnarplakkinu þínu?
Björn Birgisson, 31.3.2009 kl. 16:31
Björn kallaru það hagsmuni heildarinnar að brjóta stjórnarskrá? eða ertu dottinn inn í ráðstjórnarríkisgírinn þar sem það er ólöglegt að vera á móti tillögum ríkisstjórnarinnar?
Fannar frá Rifi, 31.3.2009 kl. 16:41
Ég meinti auðvitað Endurreisnarplagginu .
Fannar: Eftir atburði liðinna mánaða kemst ég alls ekki í neinn gír. Er bara í hlutlausum.
............ hagsmuni heildarinnar að brjóta stjórnarskrá? Skil ekki, enda andlega fátækur.
Björn Birgisson, 31.3.2009 kl. 16:48
Hehe, ráðstjórnargírinn, ætli við munum ekki aka í honum næsta kjörtímabilið. En Endurreisnarplaggið sýni ég hverjum sem vill sjá vitleysuna á prenti og sannfærast um að fallegra væri nú að hafa grænan runna fyrir framan sig.
Baldur Hermannsson, 31.3.2009 kl. 16:49
Það hefur oft bjargað mér í lífinu að vera andlega fátækur
Hörður B Hjartarson, 31.3.2009 kl. 18:58
Þar er ég ósammála þér. Ég bý að geysilegum andlegum auði en hef aldrei átt neitt veraldlegt og kann hvoru tveggja harla vel.
Baldur Hermannsson, 31.3.2009 kl. 19:03
Andans auður angrar hann ,
heldur íhald haldi
hrákasmíð í hægra bann
hrópar kóninn Baldi .
Hörður B Hjartarson, 31.3.2009 kl. 19:38
Hm................ hm ............ Nr. 6
Björn Birgisson, 31.3.2009 kl. 20:01
Hörður, það er tekið strangt á rangri stuðlun hér á bæ. "Andans auður angrar..", einum sérhljóða of mikið og svo verður næsta lína að byrja á sérhljóða. Hugmyndin er góð en þú þarft að bæta útfærsluna. Íslensku rímurnar eru andans auðlegð sem hafa ber í heiðri, heyrðirðu það Björn Grindvíkingur!
Baldur Hermannsson, 31.3.2009 kl. 20:29
Þú fyrirgefur , höfuðvöxturinn leifir ekki betra en svona "hrákasmíð"
Hörður B Hjartarson, 31.3.2009 kl. 20:56
Heyri! Þegar guðirnir tala heyri ég, bljúgur og trúrækinn og líka trúlaus, ekki gleyma því. Virði mína guði og hlýði þeirra kalli. Sagði ég nokkuð ónotalegt um Bakkus vin minn?
Andans sauðir angra mann,
auðsins íhalds búkar.
Hrákasmiður við hvers manns rann,
hallar sér og kúkar.
Toppar þetta Hörð B. Elgsson?
Björn Birgisson, 31.3.2009 kl. 21:41
Þetta er miklu betra en samt er ofstuðlun í annarri línu. Hvar er nú kempan seagull sem vanur var að sletta fram kviðlingum hér um árið? Nei, þú hefur talað illa um marga í mín eyru, þar á meðal guði á borð við Drottinn Oddsson - en þú hefur aldrei hallað orði á heilagan Bakkus.
Baldur Hermannsson, 31.3.2009 kl. 21:47
En strákar, Hörður og Björn, kannist þið við þessa hendingu:
"Illt er að eiga ást við þann,
sem enga kann á móti."
Er þetta úr gamalli vísu eða gömlum dansi?
Baldur Hermannsson, 31.3.2009 kl. 21:49
Þetta er alveg ný vísa, e.t.v. byggð á gömlum lummum.
Illt er að eiga ást við þann,
sem enga kann á móti.
Hermanns Baldur, ég ér hann
og á mér bloggsins kvóti.
Hnoð. Sorry!
Björn Birgisson, 31.3.2009 kl. 22:03
Hm. Orti Bakkus þetta?
Baldur Hermannsson, 31.3.2009 kl. 22:11
Botnaðu þetta sjálfur á 5 sek. Bakkus er ekki skáld, hann er mannabætir!
Björn Birgisson, 31.3.2009 kl. 22:24
Dansi ??? Kannast ekkert við þetta , en fynn Vatnsendalykt af þessu .
Hörður B Hjartarson, 1.4.2009 kl. 16:47
Sammála um Vatnsendalyktina en fróðskaparmenn sem ég hef spurt hyggja að þetta sé viðlag úr gömlum dansi.
Baldur Hermannsson, 1.4.2009 kl. 16:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.