Ó hvað ég sakna Ingibjargar Sólrúnar

Ægilega er þetta nú lágkúruleg og gegnsæ smjörklípuaðferð. Þetta lið hefur ekki burði til að ræða eitt eða neitt sem máli skiptir og þá fara menn í einhverja tilgangslausa fortíðarrannsókn. Líf íslensku þjóðarinnar hangir í bláþræði og kerlingarbjáninn situr þarna í ruggustólnum og fjasar um bókhald.

Getur engin komið vitinu fyrir þessa vesalings konu? Aldrei hélt ég að sá dagur rynni að ég myndi sakna Ingibjargar Sólrúnar en ég geri það núna.


mbl.is Taka undir að Ríkisendurskoðun skoði fjármál flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

Grunnt á kvenfyrirlitningu hjá garminum, að vanda 

Hlédís, 21.4.2009 kl. 12:05

2 identicon

Heill og sæll; Baldur, og þið hin, sem síðu hans geyma, og brúka !

Velkominn; í spjallvinahóp minn, Baldur ! Þakka þér; ágæta hugvekju, hérna.

Hlédís !

Í hvaða helvítis móki, lifir þú ? Ég man nú ekki betur; en að þau Jóhanna og Steingrímur hafi lofað fjölskyldum og fyrirtækjum, allri mögulegri aðstoð, þá þau settust á tróninn, í Febrúar, í vetur.

Orð Baldurs; mætti alveg eins, heimfæra upp á Steingrím - og hafa ekkert með kven- eða þá, karlfyrirlitningu að gera. Miklu fremur, að sýna fram á helvítis gufuháttinn, hjá þessu liði. Getur þú, lifað á loftinu, Hlédís ?

Ekki; hefi ég náð því, að tileinka mér það, ágæta frú. 

Reyndu; að líta upp fyrir pólitísku gleraugun, Hlédís, og sjá STAÐREYNDIR þær, sem við okkur blasa - og ástandið versnar enn, í þjóðlífinu.

Með beztu kveðjum /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 12:20

3 Smámynd: Hlédís

Kæru Óskar og Baldur!

Ég mæli síst með dratthalaganginum við raunverulegar umbætur.  'Lausnir' SF á vanda skuldsettra og gráthlægilegaráætlanir um að lengja þar eingöngu í hengingarólum eru til skammar. Athugasemd ágætrar frúarinnar hér var vegna myndar BaldHer af 'kerlingunni í ruggustólnum' Honum hættir til að láta skína í kvenfyrirlitninguna.

Verið þið blessaðir

Hlédís, 21.4.2009 kl. 12:54

4 identicon

Komið þið sæl; enn !

Hlédís ! Sýni Baldur; einhvern vott kvenfyrirlitningar, skal ég skamma hann, hér með.

En; samt las ég ekkert það, úr færzlu Baldurs - sem heimfæra mætti, sem slíkt, miklu fremur, hversu hann, sem flest öll okkar hinna, með SKILNINGARVIT sín eru í lagi, að fólk er orðið, andskoti pirrað, á þeim S og V lista blaður skjóðum, almennt - nema; ............ innsti trúarsöfnuður þeirra, náttúrulega, frú Hlédís.

Vona; að þú skiljir, hindrunarlítið - þessi einföldu skilaboð.

Með beztu kveðjum - sem þeim, hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason

   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 13:01

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hlægileg þessi móðgunargirni í þessum kellingum. Hér talar hún sjálf um garma og á blogginu er talað stanslaust um mannfjanda og karlskratta, en um leið og minnst er á vesalings kerlingu þá ærast þær. Jæja, sama er mér.

Baldur Hermannsson, 21.4.2009 kl. 13:37

6 Smámynd: Hlédís

Þökk sé þér, Óskar Helgi!

Eiga munt þú fullt í fangi að hemja þinn nýja vin

Kveðjur í Árnesþing.

Hlédís, 21.4.2009 kl. 13:38

7 Smámynd: Hlédís

Love you too, BHer !

Hlédís, 21.4.2009 kl. 13:41

8 Smámynd: Hörður B Hjartarson

     Óskar !   Ég myndi nú treysta mér til að fleyta mér áfram í "nokkur" ár fyrir 85millur hvað þá nokkur hundruð milljónir , eins og styrkirnir , til allra flokkanna , hljóða upp á .

     Feitt er ykkar veski að muna ekki um svona "tittlingaskít"

Hörður B Hjartarson, 21.4.2009 kl. 18:46

9 identicon

Komið þið sæl; að nýju !

Hörður !

Vinsamlegast; ekki gera mér upp skoðanir. Þar; fyrir utan, átta ég mig ekki, á þessu slaðri þínu, ágæti drengur.

Með beztu kveðjum; samt, sem áður /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 21:46

10 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hehe, nú eru lærimeistararnir orðnir tveir, Árni og Óskar. En það veitir sannarlega ekki af uppalendum, eins og við erum nú agalegir slúbbertar flestir okkar hér á blogginu. Þökk sé þeim Árna og Óskari.

Baldur Hermannsson, 21.4.2009 kl. 23:02

11 Smámynd: Hörður B Hjartarson

     Óskar !

     Ég bið forláts hafi ég verið að gera þér upp skoðun , en þetta las ég út úr þinni aths. , kannski ég ætti að fá mér sterkari gleraugu svo ég minnki kannski örlítið slaðrið .  Það er kannski hægt að segja um mig:

                                       Oft hann svíkur sannleikann,

                                       sér þar ekki vígi,

                                       aftur sífellt sýnir hann

                                       samúð hverri lýgi.

Hörður B Hjartarson, 21.4.2009 kl. 23:29

12 Smámynd: Baldur Hermannsson

Flott vísa. Nú hlýtur Óskar að taka gleði sína. Vona að Árni reki glyrnur í hana líka.

Baldur Hermannsson, 21.4.2009 kl. 23:31

13 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Blessaður Baldur "slúbbert" ! Þurrkaðu þetta út í einum grænum (eða tveim).

Hörður B Hjartarson, 21.4.2009 kl. 23:35

14 Smámynd: Baldur Hermannsson

Þurrka hvað út? Og til hvers?????

Baldur Hermannsson, 21.4.2009 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Hermannsson

Höfundur

Baldur Hermannsson
Baldur Hermannsson

Meirihlutinn hefur alltaf rangt fyrir sér. (Ibsen, lauslega snarað)

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 340328

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband