Ég var í rétti......

Einu sinni var karl í Reykjavík, ferlegur þverhaus sem aldrei gaf sig. Hann lenti í hörðum árekstri á Hringbrautinni og sat fastur inni í bílnum, svo sækja varð slökkviliðsmenn til að skera hann úr flakinu. Þarna lá þverhausinn, alblóðugur og deyjandi, en ekki aftraði dauðinn honum frá því að gnísta tönnum og tuldra í sífellu: ég var í rétti...ég var í rétti......
mbl.is Viljum fá prestinn okkar aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þetta er að verða stemmningin hjá kirkjunnar mönnum, mun ég hafa samband við Guð minn eftir öðrum leiðum en með milligöngu kirkjunar

Björn (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 09:57

2 identicon

Þetta er góð dæmisaga ! :)

Grétar (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 10:03

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Björn, ég held að Hann hafi nákvæmlega ekkert á móti því að ræða við þig milliliðalaust. Er það ekki einmitt það sem Frelsarinn kenndi okkur?

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 10:03

4 Smámynd: Baldur Hermannsson

Grétar, stundum á hún alveg ótrúlega vel við!

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 10:05

5 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Skemmtileg dæmisaga. Mér finnst reyndar gott að hafa fáa milligöngumenn.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 17.10.2009 kl. 10:33

6 Smámynd: Baldur Hermannsson

Silla mín, málið er að gaurar sem eru hneigðir fyrir káf eiga að láta stelpustrýturnar í friði enda hafa þær ekkert sem gaman er að þukla á. Best er að einhenda sér að þessum eldri, þær þekkja heiminn og hafa húmor fyrir þessu.

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 10:38

7 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

 Einmitt!!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 17.10.2009 kl. 10:44

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Baldur góður að vanda hehe keep on dreaming

Jón Snæbjörnsson, 17.10.2009 kl. 11:47

9 Smámynd: Baldur Hermannsson

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 12:02

10 Smámynd: Baldur Már Róbertsson

það er samt vont þegar einhver keyrir á mann af ásettu ráði því þá skiptir litlu máli hversu varlega maður keyrir . Það eru til svo veikir einstaklingar 

Baldur Már Róbertsson, 17.10.2009 kl. 12:19

11 Smámynd: Baldur Hermannsson

Djúpur, nafni, djúpur.

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 12:22

12 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég skil ekki alveg samhengið um umferðaróhapp og prestinn á Selfossi svo vil ég benda á að Frelsarinn hefur ekki verið að kenna neinum neitt í tæp1000 ár.  Það hafa aðrir séð um það fyrir hann.

Jakob Falur Kristinsson, 17.10.2009 kl. 17:25

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Einu sinni þekkti ég gaur sem hét Jakob og hann var svo gáfaður að hann var aldrei kallaður annað en Kobbi klóki. Samhengið milli þverhaussins og Gunnars hefði ekki vafist fyrir Kobba klóka.

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Hermannsson

Höfundur

Baldur Hermannsson
Baldur Hermannsson

Meirihlutinn hefur alltaf rangt fyrir sér. (Ibsen, lauslega snarað)

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 340287

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband