Þjóðin þarf að losna við þjóðkirkjuna

Þetta heitir að þekkja ekki sinn vitjunartíma. Selfyssingar vilja ekki Gunnar Björnsson. Hann verður að sýna þeim lágmarks virðingu og láta sig hverfa. Það gerir hann ekki, heldur lemur höfðinu í steininn í von um að steinninn brotni á undan hausnum.

Samkvæmt fréttum ætla 10 þjóðkirkjuprestar að halda stuðningsfund fyrir Gunnar annað kvöld. Þessir menn þekkja ekki heldur sinn vitjunartíma. Nú þarf þjóðin að losna við þjóðkirkjuna. Eignum hennar ber að skipta upp á milli kristinna trúfélaga í landinu.


mbl.is Hyggst hafa boðskap biskups að engu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ekki er ég viss um að við eigum að losa okkur við þjóðkirkjuna. En brestirnir eru til staðar og við verðum að fara að hugsa ýmsa hluti upp á nýtt. Skelfilegt er síðasta dæmið. Eins og þú sagðir ..hann kann ekki sinn vitjunartíma. En þó 10 prestar komi og jái með honum, er það ekki bara 2-3 % af prestum landsins?

Kveðja frá einni sem á tengdadóttur sem er prestur.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.10.2009 kl. 21:12

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Og þessi bloggvinkona þín er í sóknarnefnd í einu prestakallinu!!

Kveðja Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.10.2009 kl. 21:14

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Silla mín, lúterska kirkjan má mín vegna lifa um aldur og ævi en það bara gengur ekki að hafa hana lengur á einhverjum sérsamningi við ríkið. Mistökin og hneykslin eru orðin alltof mörg. Ég hef alltaf talið farsælast að hafa hana áfram en nú er mér nóg boðið. Ég sný við henni bakinu. Burt með hana.

Baldur Hermannsson, 15.10.2009 kl. 21:18

4 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ok..Bara reiður vinur??

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.10.2009 kl. 21:22

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Nei Silla, ég er sko ekki reiður, en segjum langþreyttur. Ég hef um langt árabil borið blak af þjóðkirkjunni þótt ég sé ekki meðlimur hennar, en nú er því lokið. Nú ætla ég að standa með þeim sem krefjast aðskilnaðar ríkis og kirkju.

Baldur Hermannsson, 15.10.2009 kl. 21:25

6 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já ég skil það vel. Ég er það líka!! Langþreytt.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.10.2009 kl. 21:34

7 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ætla meira að segja að segja mig úr sóknarnefndinni. Í fullri alvöru.

Kveðja og góða nótt vinur.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.10.2009 kl. 21:36

8 Smámynd: Baldur Hermannsson

Skynsamleg ákvörðun. Til einskis að fást við eitthvað sem bara færir manni vonbrigði og ergelsi - nóg er nú samt í henni versu.

Baldur Hermannsson, 15.10.2009 kl. 21:38

9 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já nóg annað og betra að fást við og eyða kröftum mínum í..svo sannarlega. Veröldin okkar hefur svo margt upp á að bjóða Baldur minn.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.10.2009 kl. 21:42

10 Smámynd: Björn Birgisson

Aðskilnaður ríkis og kirkju. Gamalt vín á nýjum belgjum. Margrædd hugmynd. Er þetta ekki mál til að bera undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu? Væri fín æfing fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB! Alvöru lýðræði, minna þvaður.

Björn Birgisson, 15.10.2009 kl. 21:48

11 Smámynd: Baldur Hermannsson

Geysimargir hafa beinan fjárhagslegan ávinning af samfloti ríkis og kirkju svo það væri varla réttlátt að láta þjóðaratkvæðagreiðslu skera úr um þetta. En þetta er vissulega ein leið. Enn sem komið er tilheyra 80% þjóðarinnar þjóðkirkjunni en þeim fer fækkandi.

Baldur Hermannsson, 15.10.2009 kl. 22:21

12 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Baldur, maður gæti haldið á þessum skrifum þínum að kirkjan væri það spillt að hún væri ekki hinu vammlausa ríki ekki samboðin.

Magnús Sigurðsson, 15.10.2009 kl. 22:24

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Skemmtileg athugasemd, Magnús, en ég horfði nú ekki þannig á það satt að segja.

Baldur Hermannsson, 15.10.2009 kl. 22:35

14 Smámynd: Eygló

Mikill kostur við "ríkiskirkjuna" er að innan hennar virðist miklu minna um hneykslanlega hegðun en í þeirri kaþólsku :)

* almennt

Eygló, 16.10.2009 kl. 01:14

15 Smámynd: Baldur Hermannsson

Veit hvað þú ert að fara, Eygló, en hvaða dæmi um hneykslanlega hegðun innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi getur þú nefnt?

Ef þú ætlar þér í samanburð verður þú að bera saman réttar stærðir - þú mátt engan veginn bera saman fjölda hneykslismála td í Ameríku við fjölda hér á Íslandi, því Ameríkanar eru 1000 sinnum fleiri en við.  

Baldur Hermannsson, 16.10.2009 kl. 10:20

16 Smámynd: Eygló

"...virðist..."

Eygló, 16.10.2009 kl. 20:56

17 Smámynd: Baldur Hermannsson

OK Eygló, það hafa gerst hlutir hjá kaþólsku kirkjunni hér sem betur hefðu ekki gerst, en þeir eru meinlausir í samanburði við þetta, afar fátíðir og óralangt síðan........ miklu varðar hvernig kirkjan sem stofnun tekur á innri málum.

Baldur Hermannsson, 16.10.2009 kl. 21:02

18 Smámynd: Birnuson

Sæll Baldur

Væri ekki óréttlæti fólgið í því að skipta eignum þjóðkirkjunnar aðeins milli kristinna trúfélaga í landinu? Það virðist merkja að fríkirkjurnar og katólska kirkjan eigi tilkall til eignanna með vísan til þess að félagar í þeim hafa kosið skráningu þar fremur en í þjóðkirkjunni. Eiga trúfélög á borð við Ásatrúarfélagið ekki sams konar tilkall? Ég tek fram að ég hef engin tengsl við það félag og stend utan trúfélaga.

Birnuson, 19.10.2009 kl. 11:00

19 Smámynd: Baldur Hermannsson

Birnuson, ég set þetta nú fram aðallega vegna þess að kaþólska kirkjan og klaustrin eignuðust mikinn fjölda jarða á sínum tíma, það rann svo að einhverju leyti til konungs og stórbænda eftir siðaskiptin, en lúterska kirkjan er arftaki hinnar kaþólsku og fékk auðvitað margar jarðir. Ég lít svo á að hin margvíslegu kristnu trúfélög í landinu séu einnig arftakar hinnar upprunalegu kirkju og eðlilegt að þau fái eitthvað. Mér væri alveg að meinalausu að ásatrúarfélagið fengi eitthvað, en ég sé ekki með hvaða rökum það ætti að vera.

Baldur Hermannsson, 19.10.2009 kl. 11:48

20 Smámynd: Birnuson

Ég þakka svarið. Ætli rökin séu ekki eitthvað á þessa leið:

  • Við siðaskiptin gerði konungur eignir katólsku kirkjunnar upptækar og réttlætingin sú að lúterska væri hin eina rétta trú og konungsvaldið verndari hennar
  • Ef nú er viðurkennt að hver hafi rétt til sinnar trúar (eða trúleysis) og allir trúarhópar jafnir er þá ekki rétt að hvert trúfélag (og jafnvel trúleysingjafélag) öðlist rétt til eigna kirkjunnar í hlutfalli við þann fjölda sem til þeirra sækir?

Birnuson, 20.10.2009 kl. 13:44

21 Smámynd: Baldur Hermannsson

Þetta er alls ekki út í bláinn og myndi kannski koma í veg fyrir þrætur og ásakanir.

Baldur Hermannsson, 20.10.2009 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Hermannsson

Höfundur

Baldur Hermannsson
Baldur Hermannsson

Meirihlutinn hefur alltaf rangt fyrir sér. (Ibsen, lauslega snarað)

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 340329

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband