Ísland fyrir íslensk gildi

Loksins kom að því. Nú hafa bæði David Cameron og Angela Merkel viðurkennt að fjölmenningarstefnan hefur brugðist. Það er kolrangt að troða saman ólíkum þjóðum, þjóðarbrotum og menningarheimum í einu landi. En fjölmenningarstefnan var knúin áfram af ofríki, ofstopa og pólitískum rétttrúnaði. 

Land, ríki og þjóð á að vera heimili velferðar, samhyggju og menningar ....... ekki vígvöllur gerólíkra menningarheima þar sem ríkir glundroði, tortryggni, hatur og beiskja.

Evrópa á að standa vörð um vestræn gildi og vestræna menningu. Og Ísland á að standa vörð um íslensk gildi og íslenska menningu. 


mbl.is Cameron setur spurningarmerki við fjölmenningarsamfélagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 HÚRRA   HÚRRA    HEYR    HEYR.

Númi (IP-tala skráð) 5.2.2011 kl. 14:00

2 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

 Eins og ég hef margsagt annars staðar eru vinstri menn innri óvinir Vesturlanda og styðja því fjölmenninguna af alefli, því þar sjá þeir leið til að tortíma Vesturlöndum innan frá, sem ekki tókst að gera utan frá í kalda stríðinu. Allir sem láta í ljós efa eru sjálfkrafa taldir áhangendur hins nýja djöfuls 20. aldar Hitlers, en Hitler og nasistar hafa nú fengið það hlutverk, sem djöfullinn og árar hans gegndu á miðöldum. Fáir þora þess vegna að mótmæla, því þeir vita að minnsti efi um hinar nýju kenningar kostar sjálfkrafa mannorðs- sjálfsmorð. Vegna þessa ótta hafa hinir gömlu jábræður alræðs og gúlags í kalda stríðinu fengið í lið með sér allmarga kjána, sem halda að þeir séu eitthvað annað en vinstri menn. 

Það væri fróðlegt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um „fjölmenningarstefnuna“. Ef lagt væri til að stöðva flutninga fólks af gjörsamlega framandi uppruna og með framandi beinlínis fjandsamleg trúarbrögð til landsins, yrði það örugglega samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta í leynlegri atkvæðagreiðslu.

Vilhjálmur Eyþórsson, 5.2.2011 kl. 14:18

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sammála! 

Helga Kristjánsdóttir, 5.2.2011 kl. 14:31

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ég get alveg tekið undir þetta Baldur. En sjáðu hvað ESB er að gera með stækkun í austur og suður. Á Tyrkland heima meðal Evrópuþjóða eða er verið að rugla saman pólitískum landamærum og þjóðmenningarlegum?  Hér á Íslandi ræður pólitískur réttrúnaður í öllu stjórnkerfinu. Þess vegna er ekki hægt að banna SUS Og eru Hells Angel's

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 5.2.2011 kl. 14:36

5 identicon

Ung-Vinstri-Græn börðust fyrir moskulóð,Ögmundur vill ekki banna búrkur.Þau hafa stofnað stjórnmálaskóla(hef ekki skoðun á því) þar á að kenna nýliðum tökin á stjórnmálum.Í moskunum er kennt uppúr kóran.Ég sé ákveðin samhljóm með þessu,vonandi er ég ekki að fara með fleipur,enn sér einhver þetta líka? 

P.S. tek undir með Jóhannesi Laxdal er hægt að banna SUS?Ekki á meðan Wahabbistar(múslimar) eru að festa sig hér tengjast Ýmishúsinu,múslimabræðralagið telur þau af öfgafull fyrir sig.þeim var meinað að byggja mosku í Osló og Tromsö vegna tengsla við hryðjuverkasamtök frá Sádí-Arabíu.

Brynja S. (IP-tala skráð) 5.2.2011 kl. 15:35

6 identicon

Þetta er stóralvarlegt mál sem þú ert að segja Brynja...

Það er skandall að þetta hafi verið leyft, og borgarbúar og almenningur í landinu ekki látinn vita! 

Það VERÐUR að upplýsa þetta mál. Ég skora á þig að fara með málið í fjölmiðla. Við getum ekki látið fara svona á bak við okkur!!!

PS: Varðandi "fjölmenninguna", þá markast öll umræða um hana af fáfræði. Það er annað að virða trúfrelsi, skoðanafrelsi og svo framvegis, og dæma alla menn jafna burt séð frá uppruna, og að sýna enga skynsemi eða varkárni, og vanvirða öll helstu gildi vestrænnar menningu: frelsi, jafnrétti og bræðralag. Úr "fjölmenningu" má ekki verða chaos sem er fjandsamlegt bræðralagi. Þá er betra að menn uni sáttir hver í sínu horninu í friðsamlegum heimi. Hóf er best. Óhófleg fjölmenningarhyggja er í raun og veru rasismi. Hennar öfgafyllsta birtingarmynd er þegar verið er að "vernda" ættbálka í frumskógunum, með því að sjá til þess að börn sem hafa ekkert til saka unnið annað en fæðast þeim megi aldrei njóta eðlilegrar heilsugæslu, mennta og lífskjara, og aldrei læra að lesa, til að ekki sé verið að hrófla við gildum "ættflokksins". Þetta er bara rasismi, pjúra rasismi, og margir fjölmenningarsinnar eru einmitt rasistar...

Open Your Eyes (IP-tala skráð) 5.2.2011 kl. 17:27

7 identicon

Að "leyfa" litlum stúlkum að ganga í búrku. Að "leyfa" talibönum að reisa sína eigin skóla og kenna sínum eigin börnum. Þetta er líka rasismi. Og að leyfa fólki sem styður hryðjuverkasamtök að reisa moskur í 105 = öfga-rasismi. Farið að vakna fólk og hættið að snúa hlutunum á haus! Þið eruð ekki fávitar!!!

Open Your Eyes (IP-tala skráð) 5.2.2011 kl. 17:30

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þetta er nú endurtekin delluumræða Baldur og gefur bara snældugreyjum eins og sumum hér að ofan, óverðskuldað tækifæri til að opinbera andlega fátækt og vanþekkingu.

Það ríki sem allavega einvherjir hér og mjög margir telja helsta og besta lýðræðisfyrirbæri heimsins, er jafnframt það sem er hið eina og sanna FJÖLMENNINGARRÍKI!

Hvað ætli það nú heiti?

Magnús Geir Guðmundsson, 5.2.2011 kl. 20:52

9 Smámynd: Viggó Jörgensson

Það er bannað samkvæmt lögum um lögreglusamþykktir að ganga dulbúinn á almannafæri. 

Með öðrum orðum bannað að hylja andlit sitt.  

Viggó Jörgensson, 6.2.2011 kl. 01:14

10 Smámynd: Viggó Jörgensson

En það sem ætlaði að segja Baldur

er að maður er kominn með efasemdir

hvort hér eigi að vera trúfrelsi.   

Viggó Jörgensson, 6.2.2011 kl. 01:16

11 identicon

Hjartanlega sammála. Íslensk gildi á Íslandi!

Solveig (IP-tala skráð) 6.2.2011 kl. 09:40

12 identicon

Sæll.

Stærsta ógn vesturlanda í dag er íslam að mínu mati.

Ég hvet alla til að lesa bókina "Íslamistar og naívistar" sem fjallar um múhameðsteikningarnar. Einnig hefur Mark Gabriel skrifað mjög góðar bækur um íslam. Þær má nálgast ódýrt á t.d. amazon. Ég tel mjög eðlilegt að þessar bækur séu gerðar að skyldulesningu í framhaldsskólum enda eru þær afar fróðlegar hvort sem menn eru sammála innihaldinu eður ei.

Ögmundur og vinstra liðið veit ekkert um íslam frekar en þau vita um efnahagsmál. Það á hiklaust að loka á komu innflytjenda hingað sem ljóst má vera að laga sig illa að íslensku þjóðfélagi enda höfum við reynslu af því frá meginlandi Evrópu. Múslimar laga sig afar illa að vestrænum þjóðfélögum öfugt við t.d. kristna og búddhista þó það fólk komi hingað alla leið frá Asíu.

http://www.youtube.com/watch?v=YpM6QKaAgP0&feature=related

Helgi (IP-tala skráð) 8.2.2011 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Hermannsson

Höfundur

Baldur Hermannsson
Baldur Hermannsson

Meirihlutinn hefur alltaf rangt fyrir sér. (Ibsen, lauslega snarað)

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 340287

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband