Svíar eiga að skammast sín.

Gott er þegar ríki heimsins gera með sér samkomulag um að framselja glæpamenn hvert til annars, því það torveldar hvers kyns óþokkum að komast undan réttvísinni. En krafa Svía nær ekki nokkurri átt. Það er ekki hægt að hundelta karlmann bara vegna þess eins að tvær stelpuskjátur verða afbrýðissamar og kvarta yfir rifnum smokki. Svíar fara offari í þessu máli og alþjóðasamfélagið á að víta þá fyrir oflætið. Bretar eiga ekki að framselja Assange. Þeir eiga að sleppa honum og segja Svíum að skammast sín. 
mbl.is Segir Svía undirbúa framsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Ég bjó í Svíþjóð í fjögur ár og get vottað að þær sænsku eru alveg óskaplega lausgyrtar, taka þeim íslensku langt fram í því. Af þeim sökum er alveg ljóst að hér er eitthvað meira á ferðinni en rifnir smokkar. Vel að merkja er hér ekki um að ræða eitt tilvik, heldur tvö. Tvær sænskar píur. Minkurinn Assange er augljóslega mjög perverteraður ofan á allt annað og verðskular enga vægð, hvorki fyrir þetta eða annað.

Vilhjálmur Eyþórsson, 12.1.2011 kl. 13:53

2 identicon

Þarna eru svíar að skíta uppá bak.

Ein uppáhalds tilvitnunin mín er við hæfi:

 "This is our world now. The world of the electron and the switch; the beauty of the baud. We exist without nationality, skin color, or religious bias. You wage wars, murder, cheat, lie to us and try to make us believe it's for our own good, yet we're the criminals. Yes, I am a criminal. My crime is that of curiosity.

Sævar (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 17:52

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ég held að Svíar séu alltaf að versna þarna í einsemd heimskautanæturinnar. Það er slæmt ef þeir komast upp með að flækja aðrar þjóðir í net ranghugmynda sinna.

Baldur Hermannsson, 12.1.2011 kl. 18:01

4 identicon

Hvað eigum við að veðja miklu um að þær sænsku fengu greitt fyrir að gera læti? ÞEIR ( USA) komust að þessari afbrýðis senu og hafa boðið gull og græna skóga fyrir að gera þetta að stórmáli.

Solveig (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 10:39

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Já það er ekki spurning, afbrýðissemin og rifni smokkurinn var himnasending fyrir Bandaríkjamenn.

Baldur Hermannsson, 13.1.2011 kl. 10:46

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Assange segir að Svíþjóð sé Sádi Arabía feminismans. Líklega eitthvað til í því.

Ragnhildur Kolka, 13.1.2011 kl. 11:33

7 Smámynd: Baldur Hermannsson

Sá heiðurstitill hæfir vel þessari kæru frændþjóð okkar og verði þeim að góðu.

Baldur Hermannsson, 13.1.2011 kl. 12:25

8 Smámynd: Gústaf Níelsson

Mér sýnist sem við Íslendingar séu að draga verulega á frændur vora Svía í þessum efnum.

Gústaf Níelsson, 15.1.2011 kl. 01:18

9 Smámynd: Baldur Hermannsson

Því miður virðist það vera þróunin.

Baldur Hermannsson, 15.1.2011 kl. 11:44

10 identicon

@Vilhjálmur. Þú verðskuldar ekkert svar, en það ætti að benda þér á að það er lögbrot að hylma yfir glæp sem þú veist um, og alþjóðlegt lögbrog lögsótt fyrir alþjóðadómstólum að hylma yfir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu.

Ef Assange og Birgitta, Daníel og félagar hefðu ekki dreift þessun  efni, þá það er einu sinni komið í hendur þeirra, væru þau siðlausir glæpamenn.

Þarna voru kaldrifjaðir morðingjar að leika sér að drepa blásaklaust fólk, þekkta starfsmenn mikilvægasta alþjóðlega fréttamiðils heims (99% erlendra frétta á mbl.is og visir.is eru bara umorðað copy/paste frá Reuters, og það sama gildir um flesta fjölmiðla í heiminum,) menn sem eru undir smásjá út af starfi sínu og allir hefðu vitað ef hefðu gert eitthvað glæpsamlegt. Þessa menn léku þessir morðingar sér að því að drepa, og skjóta svo á saklausa almenna borgara sem komu þeim til hjálpar, þar á meðal börn, og myrtu til dæmis fjölskyldu ósköp venjulegs Jóns Jónssonar sem rekur vídeóleigu og hefur aldrei komið nálægt her eða stjórnmálum.

Skammastu þín, óvinur mannkynsins! Óverðugur fæddur í lýðræðisþjóðfélagi, og átt ekki heima þar! Taktu næsta flug til Norður Kóreu eða Saudi Arabíu! Fasistar sem vilja hylma yfir glæpamenn eru hættulegir mannlegu samfélagi og Vestrænni menningu!

ooo (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Hermannsson

Höfundur

Baldur Hermannsson
Baldur Hermannsson

Meirihlutinn hefur alltaf rangt fyrir sér. (Ibsen, lauslega snarað)

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 340327

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband